sunnudagur, september 22, 2002

Jæja sunnudagur runninn upp.. gærdagurinn og kvöldið var í rólegri kantinum enda ekki mikill æsingur í leikmanninum, myself.. föndraði ljósmyndamöppuna mína og hún er bara gjörsamlega upp á tíu þykir mér og svo var mér barasta boðið í mat hjá tengdó og chillaði með tengda-afa mínum að glápa á sjónvarp, þeas.fyrri hluta af Pretty Woman en fórum við hjúin (ekki afinn heldur maggi) heim til Berta þarsem hann, konan hans og hin konan (snúlli) sátu í kertaljósastemningu, nýbúin að borða og alveg latari en guð og þar sáum við seinni hluta af þeirri stórskemmtilegu bíómynd Pretty Woman... *hóst* Lá eiginilega bara fyrir allt kvöldið á einhverjum grjónapúða og svo pilluðum við okkur heim og horfðum hér á Cast Away með Tom Hanks, í annað skiptið.. Ekkert smá skrýtin mynd, meiraðsegja í annað skipti.. en svo sváfum við vel og lengi fram að hádegi og er ég núna bara alein að mana mig uppí að fara að lesa spænskubókina mína : Destino: La Carcél (áfangastaður: FANGELSIÐ...vúúúh) en jæja... allir að senda mér mail eða eitthva þangað til ég kem upp gestabók á heimasíðunni ógurlegu... ég hérna.. kann nefnilega ekkert á þetta þannig að ég þarf að leita mér hjálpar...
hehe... chiao