föstudagur, september 20, 2002

ja há, textinn hér fyrir neðan er ýkt gott lag með Tenacious D (time, u mothafuckahsZ) eins og stendur var ég að klára að borða ýkt góða samloku sem ég gerði alveg sjálf (vei) og var að hlæja að kettinum mínum, Funa, því að hann stóð einsog stjarfur að horfa á prentarann spýta út úr sér einsog nokkrum blöðum..þvílíkt merkilegt dæmi sko!!! hehehe...alveg geðveikt að spá hvort hann ætli að ráðast á þetta ferlíki sem stoppar barasta ekki... BAAAHhHhh.. anyway.. var að nördast áðan með mömmu og unu litlu systur minni, fengum okkur göt í eyrun, ég keypti mér nærbuxur og brjóstahaldara og allt er í gúddi, ég er mjög sátt... plan kveldsins er tvíþætt: annars vegar að hitta elskuna mína heima hjá berta og svo koma bæring og anna svava þangað en þau eru einmitt að fara til tyrklands eftir nokkra daga (ég er búin að panta póstkort...!!!) og planið er kannski bjór eða svo eða eitthvað og svo fara í keilu! algert rokk sko :) En mér var líka boðið í tvítugsafmæli hjá honum Mána sem ég var með í skóla (Hagaskóla) sem verður á Sportkaffi í kvöld og mig lanagr nú að kíkja á drenginn og allt teymið sem mar hékk nú með alveg deadly, ekkert búin að hitta neinn.. en ég verð nú bara að sjá hvernig þetta allt rætist.. en ég er að spá í að fara og spasla mig í framan og finna mér einhver þægileg föt fyrir kvöldið...í já, að sjálfsögðu, nýjum nærfötum!
En afrek dagsins var það í myndlist að ég er nú orðin "sidekick" hjá vondum gaur.. sjá frekar á ruglinu hans Árna, hann er allur í ruglinu... en ég verð í leðurgalla og með svipu og get slefað fólk til dauða (ekkert sexual sko, ég er bara með ofvirkan vatnskirtil eða eitthva í þykjustunni sko) en ég er líka með flirting krafta og eitthva.. en það er Gleðigaurinn (Freymar) og Árni OfurSvali, gleðigaurinn hleypur geðveikt hratt en heyrir ógisslega illa af því að jah, you guessed it, hann hleypur svo hratt að hann heyrir ekki í neinum...! ... ég veit ekki hvaða krafta árni ofursvali fær, en hann getur ábyggilega drukkið tólf lítra af kóki á sekúndu ég held að það hljóti að vera innbyggður kraftur hjá honum... hehe
jæja ég ætla að drulla mér út until later, SUCKAZ búhahaha