mánudagur, febrúar 17, 2003



Ég gæti ekki orðið pirraðri en ég er núna. Ég er ekkert búin að heyra með hægra eyranu núna í nokkra daga! Þetta er ekkert smá nett ömurlegt!!!! urrrrrrrrrrrr........ svo allt í einu er að hrannast yfir mig verkefni og drasl sem ég þarf að redda og gera og vinna í.. ég sem ætlaði að chilla fram að afmælinu mínu svo ég verði hress. I'm feelin BLUE! argf. svo það sem toppar allt í vibba og sorg. 25.febrúar þegar ég verð töttögö ára, þá fer bróðir minn aftur heim til Kína þarsem hann á heima... :( En hann er víst voða glaður því kærastan hans sem er japönsk ætlar að flytja til hans í mars og þá verður allt í gúddi hjá þeim. En mig langar ekkert til að hann fari!
Og SVO! Þá fara Dustararnir til stóra heimsins að leggja hann að fótum sínum 28.febrúar... hvað er málið spyr ég bara? Am I REALLY that boring ? Ég verð allavega orðin tvítug þegar þeir fara svo ég get verið lögleg inn á pöbbum borgarinnar og grátið í bjórinn minn.
ætla að drulllllla mér í rúmið
góða nótt allir

"i know 100 ways to be a good girl...100 ways my willingness to please..."
-Skunk Anansie