miðvikudagur, janúar 01, 2003

gleðilegt ár alle sammen

Já árið 2003 gengið í garð og ég óska ykkur öllum hjartanlega gleðilegt nýtt ár og vona að þetta verði besta ár ever. Í gærkvöldi fór ég í "party" í árbænum sem er semsagt fjölskyldureglan e-ð, horfa á flugelda og hlusta á fulla frændur mína syngja leiðinleg lög. Vei.
Svo var skálað kl.12 og allt svona jeijei en ég náttúrúlega lenti í því að vera sáluhjálpari litlu Sölku þarsem hún er bara 4 mánaða og vissi ekkert hvað var að ske og ákvað að ætla að missa sig.. En Erlan reddaði því ! Sé fyrir mér framtíðardjobbið: "Tek að mér litla hvolpa á gamlárskvöld gegn háu verði og ekkert róandi í neinn rass" .. Rúlar ? jubbs.. En Skaupið var alveg gjuððveikislega fyndið fannst mér. Sumt skildi ég ekki því að tja, ég fylgist ekkert rosalega neitt mikið í landsmálum en sumt var svo skondið. Ég hló einsog motherf. þegar System of a down lagið var tekið, viðtalið við Sigur Rós, Bonus And The Beautiful var ógeðslega fyndið.. margt mjög fyndið og þegar XXX rottweiler komu þá var mér allri lokið, þetta er pottþétt besta skaup sem ég man eftir ! En svo fór ég í partý heim til Magga og þar var fólk komið misjafnt langt í drykkjunni en undirrituð var nú ekki nógu dugleg í þeim pakka, ég var bara svona meir aað syngja með öllum lögunum (ég kom með diska sko, auðvitað alla mína uppáhalds, Audioslave,Soad,Tenacious D...and so on and so forth) og rabba við fólk . Svo þegar ég komst að því að ég væri bara ekkert ölvuð þegar allir voru að rúlla niðrí bæ ákvað ég bara að fara að lúlla.. og viti menn, ég svaf bara til 4 og var svoleiðis EKKERT þunn! mér fannst það vera týpískt því að það var ógisslega reykt þarna og mar getur stundum bara fengið timburmenn bara útfrá því. Rokk. Ég er ábyggilega ein af fáum sem er ekki þunn. Mig langar bara í sund og synda eða í world class eða eikkva.!! En ég ætla frekar að fara í mat til ömmu minnar og fara á bömmer yfir öllum hitaeiningum..hahahahahahaaha NEIeðajú

annars aftur bara gleðilegt ár !!!