laugardagur, október 05, 2002

jeminn-hvað þessi dagur hefur verið últra myglaður!!! Gærkvöldið var stuð frá helvíti... maturinn hérna heima var killer góður hjá henni mömmu og svo fórum við hjúin til tengdó þarsem berti jóna og snúlli voru með magann útí loftið eftir ógurlegt grill ala biffi (in the dark..hehe) og svo var farið til berta, djúsað pínu og svo bara meira.. dave lét sjá sig.bæring og anna komu og lilja og edda, sem var einmitt að fá sér nýjan bíl (til hamingju!!..er hann ekki hvítur?hehe..) og svo var ferðinni haldið niðrí bæ.. stoppuðum á O'Brians og fengum okkur einn dökkann, hittum þar sim-dog og búra alltaf í góðum fíling, búri er ábyggilega heilt ár í gegnum málmleitartæki!! svo eftir að spjallað var og Örri kom einmitt frá Reyðarfirði þarsem hann er fluttur (Asni..hehe..) og svo seinna á Nelly's þarsem lord of pain Fíji var einmitt að vinna(hann vinnur líka við það að pierca..á Víking Stúdíó í Kópavogi) og þar byrjaði sko almennilega steypan... ég og Anna Svava byrjuðum að spjalla við einhverjar 2 stelpur og upp komst úr krafsinu að önnur þeirra var bi-ari og þá byrjaði anna að steypa og ég tók þátt í því...allt í einu vorum við anna orðnar að kærustupari og steyptum svo illilega í þeim að það var geðveikt.. en svo fattaði ég seinna um kvöldið að ég þekkti aðra stelpuna :) Sem var ekki að meika það því það var svo asnalegt að vera að back out útúr þessum brandara þannig að þetta var bara fuck it.. svo var það bara herr taxi kl.hálf fimm eða eikkva og langþráður svefn sem tók þá við.. og dagurinn í dag er bara búinn að vera mest myglaður, fórum á American Style í dag, ég maggi og berti og rotnuðum þar saman.. svo hef ég bara verið á náttfötunum og nenni svo ekkert að gera.. en ég er að fara í innflutningspartý í kvöld (ætla að vera bílstjórinn sko) til hans Jóns sæta og Sigga (sem var trommarinn í hljómsveitinni minni fyrir sona ári síðan, Smarty Pants) og jájájá..ég veit ekkert lengur ég ætla aldrei að drekka aftur..hehehe