miðvikudagur, apríl 28, 2004



Ég er að missa vatn yfir disknum frá þessum gutta sem heitir Jamie Cullum og diskurinn heitir Twenty Something.. Ég hef bara sjaldan heyrt jafn svala rödd og geðbilaðar útsetningar... Gaurinn tekur Jeff Buckley, Jimi Hendrix, I'm Singing In The Rain svo eitthva sé nefnt og svo einhver 2-3 lög sem hann samdi.

EÐAL diskur og allir að hlusta sem hafa smekk fyrir góðri mjúsík.

Annars bara endalaus þreyta á mínum bæ, það er eitthvað stress yfir því að ég komist ekki til kína í sumar vegna einhverrar malaríusprautu sem ég má víst ekki fá en ég skal komast til botns í þessu máli.. HMMM! ég SKAL fara út!

þriðjudagur, apríl 27, 2004

Jahér..
Haldiði ekki bara að yours truly sé ekki lengur kona einsömul! .. Bammbiramm!
Allt tilheyrandi byrjað, ógleði, sííííííþreyta og tilfinningasveiflur.. en samt alveg einstök og ótakmörkuð hamingja :) Hormónasveiflur verður eitthvað sem verður daglegt brauð héðan í frá - so I will ask all to bare with me..
sjitts..þetta er alveg ólýsanleg tilfinning !
Weeehoo!

miðvikudagur, apríl 21, 2004

YoYo..

Var að koma úr leikfimi og er búin að vera hörkudugleg þessa vikuna og ætla að halda því áfram þartil ég fer út til kína í júlí ;D Eins gott að vera í góðu formi ef mar er að fara að ferðast eitthvað bigtime. oh yeah..

Er byrjuð að lesa Da vinci lykilinn og hún er alveg vægast sagt geðveik.. er komin einhverjar 200 bls.af stað og ég get ekki hætt. ég dýrka sona bækur sem maður festist í .. almennilegt!

Fór á Cold Mountain um daginn.. jújú, Nicole kidman&jude law í svaka ást og sorg, whatever.. jájá, fín og allt .. held ég vilji frekar High Fidelity í staðinn! Hananú!

Síðasta helgi fór í smá gleði á laugardagskvöldið og það var ljúft en ekki laust við frekar sjúklega þreytu á sunnudeginum..

Annars er ég ánægð (Leiðrétting: Mjög ánægð!) með aukatónleika Deep Purple.. ég missi sko ekki af miðasölunni fyrir aulaskap núna!!! Arrg!

Veit einhver hvenær miðasalan á Metallica byrjar? Og hvar?
Dammdiramm!

fimmtudagur, apríl 15, 2004

Djöf man ég þegar peeps voru með "Snilld" á heilanum. Allt var snilld og allir voru snillingar. Kannski man ég þetta svona vel því að ég var gjörsamlega með þetta fast í hausnum á mér. Dammdiramm... !
Samt finnst mér "snilld" vera þvílíkt þungavigtarorð.. Talað var um Beethoven og Michaelangelo sem snillinga, ekki eitthvað trash fólk sem gerir eitthvað lala vel.

Pæling.

Mér er annars fáránlega illt í framan. Hví? Jú,ég er með ofnæmi. Snyrtivöruofnæmi.. Ef ég væri strákur væri þetta minna vandamál (Bah!) en goddarn it. Hugsa ég fari bara í smáralind og kaupi mér eitthvað fallegt til að komast yfir leiðindin ;)

miðvikudagur, apríl 14, 2004

Var að fatta það að ég er búin að vera soldið dugleg að fara í bíó síðustu mánuði eða svo..

Hér kemur kvikmyndagagnrýni Erlu:


Byrjum á STARSKY&HUTCH -- hún var ágæt sosum, þunnt grín á köflum en engu að síður one-liners sem eru ódauðlegir hjá ice-crewinu (DO IT!DO IT!). owen&stiller eru kúl partnerar en mér finnst wilson alltaf einhvern veginn skemmtilegri..mér fannst hann líka fyndnari í zoolander og sona. ég veit ekki.. samt er stillerinn góður áðví!
Af fimm snjörnum, fær hún tvær og hálfa snjörnu...

AMERICAN SPLENDOUR-- alger snilld, gloom&doom og bitrari gaur hef ég varla séð í mynd á ævinni.
"Revenge of the neeeeerds" atriðið var stórfenglegt með ekkkert smá kostulegum
vin hans.
Fjórar snjörnur af fimm

ALONG CAME POLLY-- stilller enn og aftur, jújú, hann er fyndinn og jennifer aniston er fyndin líka.
Samt finnst mér hún ekkert til að hrópa húrra fyrir nema þá Hank Azaria sem
"the scooba instructer".. Zolid.. Like a hippo!
2 snjörnur af fimm

HIDALGO-- jisus minn.. þegar ég sá treilerinn fyrir einhverju síðan sagðist ég ætla sko ALGERLEGA að sjá þessa mynd .. well, ég hefði getað sparað mér geðheilsuna.. Aðra eins
leiðindamynd hef ég ekki séð lengi. jújú, gobbidigobb senurnar flottar og gobbidigobb
í eyðimörkinni alltaf spennandi, en viggo var bara ekki að meika sens því miður og
hann fór alveg með það þegar hann söng eitthvað indjánalag. hann missti kúlið.
1 og hálf snjarna (fyrir brellurnar og one-linerana td."Nobody hurts my horse")

WHALE RIDER-- falleg og flott, bara æðisleg í alla staði.. hef ósköp lítið að segja um hana nema bara
að ég mæli með að ALLIR sjái hana, töffarar sem aðrir...
5 snjörnur af 5..

SOMETHING'S GOTTA GIVE-- frekar fyndin, ég held samt að foreldrar mínir hafi skemmt sér betur yfir henni, enda
þetta miðaldarakrísudæmi þekki ég ekkert af viti. en nicholson fyndinn og ég sátt við
útkomuna.
3 af 5


PETER PAN
(með ensku tali of course)
-- algert ævintýri og ég alveg heilluð frá 1 mínútu til hinnar síðustu.. allt alveg hrikalega
flott og algert augnakonfekt
3.5 af 5

50 FIRST DATES
-- sandlerinn klikkar ekki og ég sátt.. frekar fokkt opp pæling en það er ekkert verra..
3.7 af 5

STUCK ON YOU-- djös viðbjóður. alger sori
0 af 5

THE PASSION OF THE CHRIST-- ööö. orð eru óþörf..held samt að ég horfi ekkert á hana aftur!
5 af 5

THE WHOLE TEN YARDS

-- hmm.. sorglegt framhald af fyrri myndinni sem er í miklu uppáhaldi hjá mér..
þunnt djók en bruce alltaf svalur. samt.. fyrri myndin miklu betri
3.5 af 5

SCHOOL OF ROCK

-- if ya'll know me, þá þarf ég ekkert að segja hvaða einkunn ég gef þessari mynd!
SNILLD.

miðvikudagur, apríl 07, 2004

hahahaha....þessi gaur er náttúrulega alveg fáránlega fyndinn! Hvað er þetta sko...hahaha...
Ég GRÁTBIÐ EINHVERN UM AÐ REDDA MÉR MIÐUM Á DEEP PURPLE!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

( Painter! Come colour up my life! )
*tár*

Veit einhver annasr hvenær miðasalan á metallica hefst? (fuckin' a hvað ég er að fara!)

mánudagur, apríl 05, 2004

jahér. djöf líður tíminn börnin mín ! ég hef ekkert blöggað frekar lengi, ekki vegna þess að ég sé upptekin eða góð með mig, ég bara einfaldlega hef ekki nennt því! Obbobbóoosíí!
Helgin fór í gleði - gleði á föst, þynnka á laug og pirringur á sunn (týpísk uppskrift?) ..
that's life ya'll..
fór á 50 first dates í gærkvöldi, hún var alveg ágæt barasta..
sá svo reyndar peter pan á laugardeginum(já.ég er 21 árs og ég elska svona ævintýra&teiknimyndir!) og hún var bara mega flott.. litir og allur pakkinn, algert augnayndi..

Annars mun orðið "páskafrí" ekki eiga við mitt líf þessa dagana.. þarf að passa mig aðeins að fara að safna meiri pening til að eiga fyrir inntökuprófum í hollandi í júní ..
bammbiramm.. hefur einhver hugmynd um hvað kostar að fljúga út td til amsterdam eða eikkvað ?

jæja..ég er alveg orðin dry í hausnum -- i'm gonna rushhh

miðvikudagur, mars 31, 2004

YoYo. Tjekka á einhverju testi hérna...ekkert rugl

Take my Quiz on QuizYourFriends.com!

þriðjudagur, mars 30, 2004

Já..ég er alveg fáránlega ekki dugleg í bloggi - finnst eiginlega skemmtilegra að lesa annarra manna blogg heldur en að skrifa í mitt eigið..!
Fór í gærkveldi á fyrstu trio æfinguna mína- er með gítarleikara&bassaleikara
úr Fíh sem eru nett skondnir gaurar, það gekk svona frekar vel en það er ekki nú mikið að marka fyrstu æfinguna.

Fór svo á passion of christ í gærkvöldi -- mér til mikillar ógelði.. mér fannst hún alveg trufluð, fáránlega flott og listræn en hún var svo ofbeldisfull að mér var ekkert sama á köflum.. ég mun seint flokkast undir "nagla" að horfa á svona mynd en ég held að ég hafi ekkert verið ein um þetta..

Gibson er bara hardcore


Jesú sjálfur (jim caviezel) var alveg rosalega flottur þó að ég hafi aldrei meikað þennan leikara áður.. en hann sannaði sig algerlega... kúl líka að vita af því að hann sé alveg strangtrúaður gæji..



Mér fannst samt mest sick dæmi Satan (Rosalinda Celentano).. hún var algert ógeð...



Hún var bara svona milljón sinnum ógeðslegri í myndinni, geðveikt föl og með engin andlitshár og eikkvað..*hrollur*

fimmtudagur, mars 25, 2004

Ég hef tröllatrú á honum Árna mínum.. Hann ætlar að blogga 100 færslur á þessum degi og er kominn vel á leið..
Árni -- þú getur tekið e-ar tissjú sögur / loose the cool sögur / Rasmus sögur .. þetta verður interesting að tjékka á á morgun...!
:)

annars er ég dead tired og ætla að henda mér í háttinn. vakna snemma og vinna, fara svo í búðir og versla fyrir bústaðarferðina sem verður lagt af stað í um hádegið.
Yeah.
Oh.
Var að hlusta á útvarpið áðan og heyrði eitthvað lag þarsem eftirfarandi línur voru..
"I want a lady on the street but a freak in the bed"
Er þetta það sem þið þráið karlpungarnir ykkar? Einhverja rosa lekkera, feimna, jafnvel skrifstofutýpuna, stelpu sem allir vinirnir tjékka á og segja "já hún er rosa sweet" en svo í svefnherberginu breytist hún í eitthvað twisted animal ?

Hver vill vera með fríki í rúminu ? Frekar bara einhver sem er heví hress og góð/ur á því.. Ekki vildi ég deila rúmi með einhverjum óhugnaði.

O nei, good sir, I won't!

Svo er ég líka ekki frá því að j-lo sé bara sú allra versta söngkona sem ég veit um. það er pottþétt ekki auðvelt að vera ömurleg í alla staði.. ég bara vorkenni henni ekki bean!

AH.. helgin verður sweet -- sumarbústaður og gleði (eftir 9 vikna pásu er alveg kominn tími á góðar stundir) .. Ah.. ójá, ég hlakka svo mikið til. ætla að kaupa mér í matinn og svona á eftir, það kickar stuðinu ennþá meira back in place.. Bammbammbamm.

Elskið alla í kringum ykkur! Peace i'm outta here

þriðjudagur, mars 23, 2004

Nú fer það væntanlega ekki framhjá neinum að Joni Mitchell er gyðjan í þessum heimi.. lagið WOODSTOCK er líka bara það truflaðasta í heimi..no doubt

I came upon a child of God
walking down the road
I asked him, where are you going?
And this he told me

He said I'm going down to Yasgur's Farm,
Just join in a rock and roll band.
Get back to the land and set my soul free.

(He said) we are stardust, we are golden,
And we got to get ourselves back to the garden.

So can I walk beside you?
I've come here to lose the smog,
I feel like I'm a cog in something turning round and round.

Maybe it's just the time of year,
Maybe it's the time of man.
I don't know who I am,
But life is for learning.

(And then)we are stardust, we are golden,
And we got to get ourselves back to the garden.

We are stardust, we are golden,
And we got to get ourselves back to the garden.

By the time we got to Woodstock,
We were half a million strong
Everywhere you look there was a song and hope and a celebration.

And I dreamed I saw the bomber death planes
Riding shotgun in the sky,
Turning into butterflies
Above our nation.

We are stardust, we are golden,
And we got to get ourselves back to the garden.

We are stardust,we are a billion year old carbon,
we are golden
We just got caught up in some devil's bargain
And we got to get ourselves back to the garden.

To some semblance of a garden.


Annars er ég bara að komast á ról aftur eftir ömurleg veikindi sem enginn læknir eða neinn getur útskýrt fyrir mér.. þannig að ég er búin að ákveða að þetta sé bara búið og ekkert nema gleði from now on.

Fór á Starsky&Hutch um helgina - hún var skemmtileg.. Komst samt að því að ég er meiri Owen Wilson stelpa heldur en Ben Stiller.. það er eitthvað með þá Owen&Luke , þeir eru bara svo fokkt öpp að þeir eru sjúklega kúl.
"DO IT!DO IT!" var frekar fyndið..
..og "I'm not your mother" fór alveg með mig.
þetta er þó ekkert gaman að lesa nema hafa séð myndina..tadara..

Er farin að sakna bróður míns frekar mikið -- hitti hann eftir nokkra mánuði, bammbiramm.. það er alveg liðið rúmt ár síðan ég hitti hann, and boy, does that suck or what !


nú er eins gott að fólk fari að skrifa eitthva í commentadótið svo ég viti hvaða pönks eru hérna ;D

ég er ekki frá því að ég sé komin bara með commentakerfi..
þökk sé geimveirunni (the cow that went mad?) ;)

laugardagur, mars 20, 2004

...lazy blue eyes...

Já.. ég sá Damien Rice í gærkvöldi og það var bara breathtaking upplifun.. ég stóð og starði (I was stood in a stare..I remember it well) Þetta voru flottustu einsmannstónleikar sem ég hef farið á en leiðinlegt fólk sem talaði mikið á meðan tónleikunum stóð og lið sem var svo ölvað að það datt á fólk og tók skóna af manni og svona, dempuðu aðeins niður stemninguna en annars var ég bara í einhverjum transi.
Halelujah var svona.. jájá.. mér fannst flottara þegar hann tók Radiohead lagið CREEP inní miðju lagi, það passaði vel saman og átti vel um gaurinn..
samt var hann mjög flottur.. ég á bara ekki orð

Djöf er gaman að góðum tónleikum! KRÆST!
sólin skín og ég er inni -whats new pussycat

ég vorkenni svooo því liði sem missti af þessum tónleikum...sjitturinn

miðvikudagur, mars 17, 2004

pffft...

hef lítið að segja -- er búin að vera lasin og in&out spítalamatur
.. vorkunn er vel þegin !

svo er það náttlega bara herra damien rice eftir örfáa daga.. ég er ógeðslega spennt !

sjitt..það er ó-fjör að vera lasið eintak

þriðjudagur, mars 09, 2004

Ókei.

Ég ætla að selja allt sem ég á - eiga örfáar flíkur til að ganga í - kaupa mér one way ticket til Indlands og gerast full time active yogi! það er alveg á hreinu... jafnvel gúrú eða eikkvað, hætta þessu kjaftæði bara og lifa heilbrigðu, lífrænt ræktuðu lífi.

Ef einhver getur gefið mér eitthvað til að selja -- þá væri það frábært.
og ef einhver gæti bara þú veist... stofnað peningasjóð fyrir mig þá væri það enn frábærara...!

Æj. kannski ekkert rosalega auðvelt plan :/

Á morgun hefst miðasalan á Damien Rice... ætla mér sko að eignast miða á þann djöful! DADARA!

ÚFf. mamma er að meika vöfflur - ég ætla ekki að borða þær.
bíddu..

júúúú...!!!!!!!!!!!!!

mánudagur, mars 08, 2004

A crippled seven-year-old's life is to be transformed with a specialist cycle paid for by the David and Victoria Beckham.
Wheelchair-bound Karl Luxford cannot walk because his legs are weakened by the cerebellar atrophy he has suffered since birth.
But a specialist cycle, paid for as part of a £65,000 donation by the Beckhams to two children's charities, is set to change his life.
The money will pay for wheelchairs, cycles and other equipment not available on the NHS.


Jáh. það er ekkert annað - pant eiga svona pjéééning til að geta gert öðrum gott!

Ég og Jónas leigðum okkur Kung Pow: Enter The Fist í gær og ég er ekki frá því, og þetta sannaði fyrir mér enn einu sinni- að þetta er pottþétt fyndnasta mynd sem ég hef séð á ævi minni og þá er ég að meina - mér finnst hún fyndnari en Holy Grail, allar Jim Carrey myndir samanlagt og jack black !
Hvað er betri uppskrift að dellu heldur en over dubbed kung fu mynd með gallsúrasta húmor sem fyrirfinnst á jörðu.
ÉG veit það ekki!!!!!


"...from now on you will all refer to me by the name Betty
-Master Pain
..."

laugardagur, mars 06, 2004

"...no, they won't be namin' no buildings after me.."

Já. Þegar frægðin kemur bankandi uppá hjá manni þá kemur "missa-kúlið" skríðandi inn um gluggann.
Í gærkvöldi var ég svo lucky bastard að koma fram með einhverjum færustu hljóðfæraleikurum íslands (björn thoroddsen, jón rafns, pabbi og erik quick) og fá að syngja 3 djassslagara fyrir heppna gesti.. jú, það vildi svo vel til að í Morgunblaðinu stóð að ég héti Erla Skúladóttir en tja, Stefánsdóttir er mitt nafn..svo komu 10 manns að horfa á tónleikana. þetta var alveg magnað ..
samt heppnaðist frekar vel..
keypti mér fín föt í retro og skartaði glænýrri gordjöss klippingu í boði gyðjunnar, var bara hress og hélt kúlinu.
Svo í kvöld er stefnan tekin í VeraHvergi (Hveragerði) á Snúllabar þarsem ég mun taka nokkra slagara með honum Jay og ég efast ekki um annað en að þetta verði dúndurstuð!
Pixies á Ísland.
Já takk sko.Algerlega ætla ég að sjá það...
hugmynd mín að fara að sjá Raekwon the chef nk.fimmtudagskvöld á gauknum var skotin mjög pent niður í boði lilju&arnars þannig að stefnan verður tekin á School of Rock í staðinn og svo strax á Ice-Crew fund/drive.
Alger snilld. gaman að þessu
ætla að henda mér uppí rúm og tsjila aðeins, það er nú einu sinni laugardagur.......................................................